Leita í fréttum mbl.is

og það tók Davíð 3 sek að móðga þá

Mér var kennt að þakka fyrir mig þegar vel væri við mig gert. Jafnvel þó mig langaði í meira, væri það sjálfsögð kurteisi að þakka fallega.

Var að hugsa um þetta þegar ég sá Davíð flissa yfir því að Stoltenberg tilkynnti um rausnarlegt lán til okkar. Fannst þetta greinilega lítið og hallærislegt, allt annað lánið sem hann er sjálfur að græja frá Rússlandi ... ef það tekst fyrir brussuganginum. Við getum reyndar bundið vonir við að Rússar eru vanir að hantera bosmamiklar babúskur og hafa sjálfsagt þolinmæði fyrir ýmsu.

"krossa fingur"


mbl.is Norðmenn fylgjast grannt með
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sá á lykt sem fyrst finnur ...

Vertu ekki að þessu tuði Davíð.

Þetta var smjörklípa hjá þér - tvöföld meira að segaj. Annars vegar övæntingarfull tilraun til að kasta ryki (enn einu sinni) í augu fólks (og tókst að nokkru leyti) til að litið yrði fram hjá forugri slóðinni í Seðlabankanum. Hins vegar reynir hann að gefa til kynna að einhver (væntanlega) ráðherra hafi lekið þessu. En það hittir Flokkinn illa fyrir, því enda þótt vafalítið hafi Davíð þarna reynt að reka enn einn fleyginn í ríkisstjórnarsamstarfið með því að dylgja svona, og hollir flokksmenn horfi þá til Samfó sem lekans, þá lemur hann enn á Geir með því að ýja að því að Geir hafi nú ekki sömu tökin á ríkisstjórninni og hann sjálfur, ónei.

Ég hef skömm á þessum manni. Ef það skyldi hafa farið fram hjá einhverjum.


mbl.is Davíð: Trúnaðarbrestur kom á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Út með jólaköttinn

Það besta við þessa hugmynd er auðvitað augljóst brotthvarf Davíðs úr stóli seðlabankastjóra.

Þjóðstjórn er jú þannig samsett að allir flokkar koma þar að og vonandi með fagmenn um stýrið. Davíð er ekki fagmaður og sénsinn að hann fái að sitja áfram í skjóli allra flokka.

Davíð Oddson PEREAT!!!!

Ég er ekki "atvinnumótmælandi" eins og það heitir víst, né hef ég yfirleitt tekið þátt í slíkum aðgerðum. (Nema í Flatey í fyrra, sjá fyrri færslur) en ég myndi mæta í þessa aðgerð.


mbl.is Seðlabankastjóri viðrar hugmynd um þjóðstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

óbilandi trú ...

... greiningadeilda á eigin hæfi er aðdáunarverð í sjálfu sér. Nú man ég reyndar ekki hverju Kaupþing spáði um gengisþróunina á þessu ári, en er vel í minni að Glitnir spáði að hámarkinu, 130 yrði náð undir lok árs. Ojæja.

Ég held í alvörunni að menn ættu að láta vera að spá fyrir um gengi krónunnar.

Nú er fjórði ársfjórðungurinn að hefjast (í dag) og snillingarnir eru búnir að átta sig á að gengið nái hæstu hæðum á þeim fjórðungi. Eru ekki örugglega veitt einhver verðlaun fyrir svona?


mbl.is Krónan á enn eftir að veikjast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ha!

Maður er svo yfir sig af öllum fréttum af Glitnis-björgun og kaupahéðnum að þegar ég renndi yfir "helstið" og sá þessa fyrirsögn hugsaði ég; ha, ekki sagði Jón Ásgeir þetta. Hann væri bara svona yfirkominn af þakklaæti til okkar skattgreiðenda að baila hann út úr ruglinu. En neiónei. hehehe.

En að fréttinni sjálfri ... maður óskar bara lögreglustjóranum fyrrverandi og embættinu velfarnaðar.


mbl.is Djúpt snortinn og þakklátur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nálykt ...

er engum nema mér svolítið ómótt yfir því hvað hinir velgreiddur feðgar renna fljótt á nályktina? Æi bara. Einhverjar þreifingar virðast hafa verið milli þessara banka fyrir þessa rússíbanaferð en Landsbankamenn hoppa frá borði þegar ljóst er að Glitnir er að sökkva. Svo sem skiljanlegt. En þeir eru fljótir niður í fjöru þegar flakinu skolar á land ...

Að því sögðu þá vona ég að þetta gangi eftir og við skattgreiðendur/hluthafar berum ekki skarðan hlut frá borði. Enn og aftur.


mbl.is Landsbankamenn ræddu við Geir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öh, já, þetta er óvenjulegt

Vissulega eru orð Jóhanns óvenjuleg. Það er ekki það sama og þau séu röng.

Menn ættu etv að líta í eigin barm.


mbl.is Stóryrði og hrakspár Jóhanns „óvenjulegar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Life of Illugi

Ég verð nú aðeins að dást að Illuga fyrir þrautseigjuna. Það er alveg sama hvað þessir kallar þarna í Brussel segja, Illugi hefur rétt á því að hafa rétt fyrir sér - líka þegar hann hefur rangt fyrir sér.

 Minnir ótrúlega mikið á þetta skets úr "Life of Brian"

 

http://www.youtube.com/watch?v=sFBOQzSk14c

 

 


mbl.is Útilokað að taka upp evru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heilagar kýr?

Þetta eru ótrúlega ofstopafull viðbrögð sérsveitarmanna. Það veldur áhyggjum í sjálfu sér en á kannski ekki að koma á óvart?

Hér er var maður að velta upp nokkru sem svo sannarlega hefur verið í umræðunni og í stað þess að koma yfirvegað fram og skýra nauðsyn starfseminnar (að því leyti sem það er hægt) og rökstyðja hvers vegna hún er mikilvægari en almenn löggæsla á aðhaldstímum, rjúka menn til og kljúfa félagið.

Ekki traustvekjandi


mbl.is Fimm hafa sagt sig úr Lögreglufélaginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maður margra orða

Æi.

Þetta er maðurinn sem stýrir Seðlabankanum.

Maðurinn sem stýrði þjóðarskútunni í þetta fárvirði.

Eini kosturinn við þetta viðtal varað það var eitthvurt fararsnið á karli.

Alveg komið nóg. Mikið meira en nóg.

Láttu okkur vera.


mbl.is Davíð segir að krónan muni ná sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Anna Sigrún Baldursdóttir
Anna Sigrún Baldursdóttir
Anna er alvöru húsmóðir í vesturbænum og því til staðfestingar kaupir hún reglulega Martha Stewart Living

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband