Leita í fréttum mbl.is

Hvaða breytingar?

Hvað er það sem VG vill? Það væri fróðlegra að heyra það en upphrópanir og stöðugreiningu í æsingatón.

Annars eru starfslok Magnúsar Péturssonar óheppileg á þessum tímapunkti og það er ekki heppilegt að ráðherranum hafi haldist á honum þar til nýr forstjóri verður ráðinn. Orðið á göngum spítalans hefur verið frá því í september að Magnús væri á útleið. Það er ekki gott að halda svo stórri stofnun í óvissu. Magnús segir í Fréttablaðinu að hann hefði fengið fréttir af "fyrirhuguðum breytingum" og þær svo staðfestar í gær. Hvaða breytingar eru það, bara starfslok hans og Jóhannesar eða er eitthvað fleira í kortunum? Ráherrann verður að vera skýr.

Að vera forstjóri LSH er ekki fyrir hvern sem er. Það er afar flókið og vandasamt og krefst leiðtogahæfileika og gríðarlegrar stjórnvísi. Skilst að Ásdís Halla hafi vísað þessu frá sér og reyndar hefur heyrst að fleiri hafi gert hið sama.

Ég hvet efirtalda til að sækja um (random order);

Guðfinnu Bjarnadóttur

Svöfu Grönfelt

Dag B. Eggertsson (sénsinn að Guðlaugur ráði hann, en jæja)

Þórólf Árnason

Svo sæki ég auðvitað um sjálf, nema hvað

 

 


mbl.is VG segir heilbrigðisstofnanir í spennitreyju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Svo þú ert samþykk einkavæðingarárás Sjálfstæðisflokksins, með dyggri aðstoð auðsveipa félagans, Samfylkingarinnar, á heilbrigðiskerfið.

Það dugar skammt að tala um VG í einhverjum vandlætingartóni og þykjast ekkert vita hvað sá flokkur vill í umræddu máli.

Jóhannes Ragnarsson, 15.3.2008 kl. 19:34

2 Smámynd: Anna Sigrún Baldursdóttir

Ég þykist ekkert vita hvað VG vill, en spurði hins vegar eftir því.

Anna Sigrún Baldursdóttir, 16.3.2008 kl. 16:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Sigrún Baldursdóttir
Anna Sigrún Baldursdóttir
Anna er alvöru húsmóðir í vesturbænum og því til staðfestingar kaupir hún reglulega Martha Stewart Living

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband