Leita í fréttum mbl.is

Hmmm ...

Nú skal ég ekkert efast um kvalir konunnar, best að halda því til haga.

Hins vegar tók ég eftir þessari frétt í gærmorgun og miðað við tímasetninguna þá hefur konan með þessu móti komist til Reykjavíkur milli kl 13 og 14 (gæti verið milli 12 og 13). Hefði konan tekið flóabátinn Baldur hefði hún verið komin í Stykkishólm - þar sem er sjúkarhús - kl. 14.30 eða svo.

Þarna var sumsé kölluð út þyrla vegna ástands sem ekki var brátt og hefði mátt leysa með öðrum en fullnægjandi hætti tæpum 2 klst. síðar.

Hér vantar einhverjar upplýsingar.


mbl.is Fékk tjaldsúlu í augað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Stefán Þór Steindórsson

Það er greinilegt að læknar á Reykjavíkursvæðinu eru betur í stakk búnir til að fjarlægja aðskotahluti úr augum einsog td. tjald sem skorðað hefur sig fast í augnkrókunum.

 Vonum nú að hún nái sér að fullu.

Stefán Þór Steindórsson, 28.7.2008 kl. 10:47

2 identicon

það eru engir augnlæknar í Stykkishólmi!

Valgerður (IP-tala skráð) 28.7.2008 kl. 13:47

3 Smámynd: Anna Sigrún Baldursdóttir

Hana vantaði nú ekki að komast til augnlæknis með þessum hraði - slíkur var í Flatey og hafði metið stöðuna svo að hún þyrfti ekki þá þjónustu strax.

Hún hefði getað fengið verkjastillingu, sem skv. fréttinni var ástæða þyrlunnar,  og svo haldið landleiðina til Reykjavíkur og hitt augnlækni um kl 18.

Anna Sigrún Baldursdóttir, 28.7.2008 kl. 17:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Sigrún Baldursdóttir
Anna Sigrún Baldursdóttir
Anna er alvöru húsmóðir í vesturbænum og því til staðfestingar kaupir hún reglulega Martha Stewart Living

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband